Room

Rómuð verðlaunabók kemur út á íslensku

Blaðamaður Morgunblaðsins, Ingveldur Geirsdóttir, skrifaði um skáldsöguna Room í helgarútgáfu blaðsins á dögunum. Við greinum stolt frá því að von er á íslenskri þýðingu bókarinnar á næsta ári en það má með sanni segja að bók þessi hafi farið sigurför um heiminn.

„Það er eitthvað undursamlegt við það þegar skáldsögur ná að vekja mann svo til umhugsunar að þær koma upp í huga manns aftur og aftur að loknum lestri. Svo er það með bókina Room eftir Emmu Donoghue sem ég lauk við að lesa nýlega, fáar bækur hafa vakið mig til jafnmikillar umhugsunar um veröldina sem við lifum í,“ skrifar Ingveldur um bókina en hún lýsir frásögninni á þessa leið:

„Í Room segir frá ungri konu sem hefur verið fangi eldri manns í sjö ár, hún er lokuð inni í litlu neðanjarðarbyrgi og hefur ekki séð veröldina fyrir utan það í þennan tíma ef frá eru taldar fréttir og myndir sem hún fær í gegnum sjónvarpstæki sem hún er með. Eftir tvö ár í vistinni fæðir hún fangara sínum son sem er fimm ára þegar sagan hefst, veröld hans er herbergið og hann er hamingjusamur í því með móður sinni, enda þekkir hann ekkert annað.“

Bókina byggir höfundurinn að hluta til á sögu drengsins Felix sem Josef Fritzl hélt föngnum.

INNskráning

Nýskráning