Bók Sjóns, Rökkurbýsnir, sem ber enska titilinn From the Mouth of the Whale, var tilnefnd til Independent Foreign Fiction Prize í London fyrir fáeinum vikum. Nú hefur bókin verið valin ásamt fimm öðrum bókum í sérstöku forvali fyrir verðlaunin. Þessu forvali fylgir ekki einungis auknir möguleikar á að hreppa hnossið heldur einnig mikil vegsemd fyrir Sjón, enda er hann í góðum félagsskap á listanum.
Independent Foreign Fiction Prize eru þekktustu bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsögur þýddar á ensku. Verðlaunin eru veitt til bestu skáldsögunnar eftir samtímahöfund sem hefur verið þýdd á ensku og gefin út í Bretlandi árið 2011.
Skáldsögurnar sex sem eru á forvalslista:
- Alice eftir Judith Hermann
- Blooms of Darkness eftir Aharon Appelfeld
- Dream of Ding Village eftir Yan Lianke
- From the Mouth of the Whale eftir Sjón
- New Finnish Grammar eftir Diego Marani
- The Prague Cemetery eftir Umberto Eco