Sigurður Pálsson

Sigurður Pálsson klappaður upp

Á dögunum var Þórbergshátíð í Þórbergssetri, en það er árlegur viðburður í tilefni afmæli skáldsins í mars.

Hátíðin var sérlega vel sótt þetta árið og var pakkfullt í setrinu. Skemmtileg dagskrá var í boði fyrir gesti og gangandi og þar á meðal var Sigurður Pálsson sem las upp úr Bernskubók sinni. Skáldið fór á kostum og var honum afar vel fagnað. Hann var meira að segja klappaður upp og bókstaflega heimtuðu gestir að hann læsi meira, sem og hann gerði gestunum til mikillar ánægju.

INNskráning

Nýskráning