Í dag dreifum við nokkrum rjúkandi heitum bókum, bæði sígildum og spánýjum!
Bók Sigurgeirs Sigurjónssonar og Unnar Jökulsdóttur, Íslendingar, er nú loksins, loksins komin aftur!
Bókin kom fyrst út árið 2004 og því markar þessi nýja útgáfa 10 ára afmæli Íslendinga. Í tvö ár ferðuðust Sigurgeir og Unnur um Ísland og heimsóttu fólk í öllum landshlutum. Markmiðið var að skilja betur lífsviðhorf þeirra sem lagað hafa hefðbundin störf að nútímanum, standa á mörkum þess gamla og nýja.
Áleitnar myndir af fólki og náttúru draga fram nýja sýn á Ísland nútímans og ljóðrænar frásagnir, ríkulega blandaðar góðlátlegri kímni, færa lesendur nær viðhorfum og lífssýn trillukarla, þúsundþjalasmiða, ferðabænda, refaskyttna, tamningarmanna og náttúrubarna.
Íslendingar hefur lengi verið ófáanleg en er nú endurútgefin á ensku, þýsku og frönsku – í minnkuðu broti. Einstök innsýn inn í íslenskt mannlíf!
Hugleikur Dagsson heldur áfram að senda frá sér drepfyndnar bækur en í dag koma út tvær bækur eftir hann: Popular Hits III og You are Nothing.
Popular Hits III er þriðja og jafnframt síðasta bókin í seríunni þar sem snúið er miskunnarlaust út úr titlum valinkunnra dægurlagaperlna. You are Nothing er þriðja safnritið með bestu teikningum Hugleiks en fyrri tvær bækurnar eru I Like Dolphins og hin margrómaða My pussy is Hungry en þeim hefur báðum verið gríðarlega vel tekið.
Efnistök í þessari nýjustu bókum Hugleiks eru kunnugleg aðdáendum hans; þar er meðal annars tæpt á áfengissýki, firringu, undarlegum kynhvötum og almennu ofbeldi – allt með hæfilegum skammti af notalegri kaldhæðni.