Einar Már Guðmundsson

Ritlistin er eins og fjölkvæni

Kolbrún Bergþórsdóttir birti feikiskemmtilegt viðtal við Einar Má Guðmundsson í Morgunblaðinu í gær í tilefni af nýrri skáldsögu hans, Íslenskum kóngum. Þar rifjar hún upp að síðustu bækur hans tvær, Hvíta bókin og Bankastræti núll, hafi verið um þjóðfélagsmál, pólitík og hrunið, og spyr hvort þær tengist nýju skáldsögunni. Einar svarar því til að líta megi „á Hvítu bókina og Bankastræti núll sem brú yfir í þessa bók að því leyti að þessi bók vísar stöðugt í raunveruleikann. … Veruleikinn er mikill fjársjóður. Eigum við ekki bara að segja að ég hafi verið að ydda blýantinn með hinum bókunum tveimur? … Kannski hefði ég ekki getað skrifað þessa skáldsögu nema ég hefði aflað mér þeirrar þekkingar sem nauðsynleg var til að skrifa hinar bækurnar tvær á undan. Kannski kallaði hrunið fram ákveðið endurmat í huga mér. Í Íslenskum kóngum er ég að segja sögu af fólki en um leið verður til saga 20. aldar, saga okkar tíma. Sagan er sett inn í þjóðfélagsþróunina og þjóðfélagsþróunin inn í söguna. Hér má eflaust finna visst endurmat en líka sterka þætti úr gamansögunni og töfraraunsæinu og öllu því sem einkennt hefur skrif mín.Veruleikinn er alltaf að færa manni ný verkefni.“

Það eru fimm ár síðan síðasta skáldsaga Einars Más kom út, Rimlar hugans, og Kolbrúnu finnst það langur tími. En Einar bendir á að hann hafi ekki setið auðum höndum: „Allan þennan tíma hef ég verið að vinna að þessari sögu og verið í öðrum skáldskap og greinaskrifum. Ég geri engan óskaplegan greinarmun á því að skrifa grein, smásögu, skáldsögu eða yrkja ljóð. Fyrir mér er þetta allt ritlist. Oft er talað um að rithöfundar þagni þegar nokkur tími hefur liðið frá því þeir hafa sent frá sér skáldsögu. Þá er sagt í greinum og í bókmenntasögunni: Á þeim tíma hætti hann að skrifa skáldsögur. Ég hef ekki upplifað það að missa trúna á skáldsöguna heldur leyfi ég áttavita sálarinnar að ráða för og það hefur leitt mig út í hinar bækurnar sem eru skrifaðar inn í núið en eru fyrir mér eins og hver önnur bókmenntaverk. Fyrir mér er ritlistin svo víðfeðm að hún er næstum eins og fjölkvæni. … Málið er einfalt: Skáldskapurinn verður að vera í ákveðnum samræðum við veruleikann. Skáldsagan er engin heilög kýr en hún er samt svo frjáls að maður getur farið með hana í allar áttir eða réttara sagt, hún fer með mann í allar áttir. Almennt séð finnst mér skáldskapurinn eiga í skemmtilegri baráttu við afþreyingu og klámið. Við þurfum að vera snjallari en klámhundarnir og djarfari en bæði lögreglu- og glæpaskólarnir í sagnagerðinni. Þess vegna er skáldsagan að hrökkva aftur í gírinn og verða djörf og ágeng. Þetta fer allt, skilurðu, í endalausa hringi.“

INNskráning

Nýskráning