Ritþing um Kristínu Steinsdóttur

Í október gengst Gerðuberg fyrir ritþingi til heiðurs Kristínu Steinsdóttur rithöfundi. Ritþing Gerðubergs hafa fest sig í sessi í menningarlífi borgarinnar, þar er leitast við að veita persónulega innsýn í líf og feril íslenskra höfunda. Stjórnandi fær til liðs við sig tvo spyrla og spyrja þeir höfundinn vítt og breytt. Dagskráin er síðan brotin upp með upplestri og tónlist.


Kristín hefur skrifað bækur fyrir lesendur á öllum aldri, þar á meðal fjórar skáldsögur;  Sólin sest að morgni (2004), Á eigin vegum (2006), Ljósa (2010) og Bjarna-Dísa (2012). Á eigin vegum var tilnenfnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og fyrir Ljósu hlaut Kristín bæði Menningarverðlaun DV og Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna.

Stjórnandi þingins 12. október verður Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson en spyrlar með honum verða Katrín Jakobsdóttir og Sigrún Valbergsdóttir.

Í tengslum við þingið verður haldið námskeið um verk Kristínar í Gerðubergi mánudagskvöldið 30. september. Þar mun Maríanna Clara Lúthersdóttir fjalla um bókina Ljósu og Kristín mun svo líta við og svara spurningum þátttakenda.


INNskráning

Nýskráning