Jakob Martin Strid

Risastór pera á risastóru tjaldi

Saga Jakobs Martins Strid, Ótrúleg saga um risastóra peru, sló Danmerkurmet þegar hún kom samtímis út á átta tungumálum fyrir rúmu ári síðan og sigurganga hennar heldur áfram. Yfir 60.000 eintök hafa selst af bókinni sem komin er út í tólf löndum, þar með talið hér á landi, og hefur engin dönsk barnabók notið viðlíka vinsælda áratugum saman. Nýlega keypti Nordisk film kvikmyndaréttinn að bókinni og hyggst frumsýna teiknimynd eftir henni að tveimur árum liðnum.

„Okkur hafði lengi langað til að vinna með Jakob Martin Strid, sem er ótrúlega hæfileikaríkur og hefur skapað óviðjafnanlega töfraveröld. Ótrúleg saga um risastóra peru er frumleg saga sem er tilvalið að segja í kvikmynd fyrir börn og foreldra þeirra. Þar skapar Strid sinn eigin myndríka ævintýraheim, fullan af skemmtilegum smáatriðum, sem hefur náð ótrúlegum vinsældum á bók. Við hlökkum til að sjá þennan heim lifna við á stærri fleti,“ segir Thomas Heinesen hjá Nordisk film.

Jakob Martin Strid hefur sent frá sér fjölmargar vinsælar barnabækur og nýtur vinsælda um allan heim. Hann hefur þegar fengið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir söguna sína um risastóru peruna og er að vonum kampakátur með nýjasta sigur hennar: „Ég hef alltaf haldið mikið upp á teiknimyndir. Ég er stoltur og glaður að risastóra peran ætli sér nú að sigla upp á hvíta tjaldið.“

INNskráning

Nýskráning