Nýjasta bók Kristínar Helgu Gunnarsdóttur kom nýlega út. Heitir hún Ríólítreglan og er eins og margar fyrri bækur höfundar dulúðug, æsispennandi og innblásin af íslenskum þjóðsögum. Einmitt um þessar mundir eru íslensk börn um allt land að háma söguna í sig.
Höfundurinn er nefnilega þessa dagana á ferð og flugi á vegum Höfundamiðstöðvar Rithöfundasambandsins með dagskrána Kjarkur og kraftaskáld (Skáld í skólum). Lesið er úr Ríólítreglunni fyrir fjóra árganga í 18 skólum um allt land. Einu sinni var sagt að Múhameð þyrfti sjálfur að koma sér að fjallinu, verandi hreyfanlegri, en nú njóta íslensk börn þess að fá líparítfjöllin send heim; með í farteski Kristínar Helgu er sjálft sögusviðið (eða hluti þess) ? brot úr ríólítfjöllum Jökulgils – svo börnin geta snert líparítið og strokið á meðan þau hlýða á lesturinn.