Ríkisfang: Ekkert – flóttinn frá Írak á Akranes hefur bóksaflega sópað að sér verðlaunum, viðurkenningum og lofum frá því að bókin kom út í september síðastliðnum. Bókin er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna og hlaut bókmenntaverðlaun bóksala sem ein af bestu fræðibókum ársins. Bókin hefur einnig fengið mikla umfjöllun og skapað umræðu um málefni innflytjenda og flóttafólks, sem er einmitt það sem höfundurinn, Sigríður Víðis, hafði vonast eftir enda er henni málefni flóttafólks ofarlega í huga.
Ríkisfang: Ekkert fjallar um átta fjölskyldur sem flúðu skelfilegar aðstæður í Al Waleed-flóttamannabúðunum og fengu hæli á Akranesi. Allt voru þetta einstæðar mæður með börn, af palestínsku bergi brotnar en höfðu alið allan sinn aldur í Írak. Sigríður Víðis kynntist konunum og sögu þeirra og segir hana í þessari áhrifamiklu bók. Bókin fjallar um pólitísk átök undangenginna áratuga í Mið-Austurlöndum og fólkið sem lifir og hrærist í skugga þeirra en einnig um óskir sem rætast og möguleikann á nýrri byrjun.