Bókin Ríkisfang: Ekkert eftir hefur sannarlega ýtt við þjóðarsálinni og ekki að ástæðulausu. Hér er rakin saga flóttakvennanna sem komu til Akraness úr flóttamannabúðum í Al Waleed í Írak árið 2008, og hún sett í samhengi við sögu Palestínumanna. Í kjölfar útgáfunnar var efnt til fjölsóttrar fyrirlestraraðar á vegum Forlagsins og Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands sem þótti takast afar vel.
Dómar og umsagnir um bókina hafa verið mjög á einu lund. Þannig segir Magnús Þorkell Bernharðsson, sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda: „[fusion_builder_container hundred_percent=“yes“ overflow=“visible“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_1″ background_position=“left top“ background_color=““ border_size=““ border_color=““ border_style=“solid“ spacing=“yes“ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ padding=““ margin_top=“0px“ margin_bottom=“0px“ class=““ id=““ animation_type=““ animation_speed=“0.3″ animation_direction=“left“ hide_on_mobile=“no“ center_content=“no“ min_height=“none“][Sgiríður J. Víðis] sýnir hvað það ríkir sterkt samband milli þess sem gerist í alþjóðlegum stjórnmálum og daglegs lífs fólks.“ Agnes Bragadóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu kallar bókina “blaðamannslegt afrek”, Páll Baldvin Baldvinsson, gagnrýnandi, og Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, segir bókina báðir “áhrifamikla” og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mælir eindregið með henni. Svona mætti lengi telja.
Bókin hefur runnið út, fyrsta upplag er á þrotum og verið að endurprenta. Þetta er einstæð saga um áleitin mál sem snertir okkur öll – oft er sagt að þetta eða hitt sé skyldulesning og í þessu tilviki er innistæða fyrir slíkum ummælum.
[/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]