Arnaldur Indriðason

Reykjavíkurnætur og rafbækur

Í dag, fyrsta nóvember, kom út ný bók eftir Arnald Indriðason sem ber titilinn Reykjavíkurnætur. Bókin fjallar um fyrsta mál Erlendar Sveinssonar lögreglumanns og má því segja að sagan byrji með þessari bók.

Bóksalar út um allt land eru spenntir fyrir komu bókarinnar og taka þátt í framstillingarkeppni sem Forlagið efndi til vegna útkomu bókarinnar. Takið eftir því þegar þið eruð í næstu bókabúð hvernig bóksalar hafa stillt upp bókinni en sögur fara af virkilega frumlegum og skemmtilegum framstillingum.

Í tilefni dagsins komur tvær nýjar rafbækur út eftir Arnald, Grafarþögn og Mýrin og þá eru þrjár af bókum Arnaldar komnar á rafrænt form, en Einvígið kom fyrr á árinu.


INNskráning

Nýskráning