Reykjavíkurnætur

Reykjavíkurnætur fara víða

Arnaldur Indriðason á marga aðdáendur sem hafa það fyrir sið að kaupa nýjustu bók hans á útgáfudegi. Forlagið frétti af manni í Álftamýrinni sem gerir þetta einatt og hefur hátíðlegan húslestur fyrir konu sína, við kertaljós og konfektát.

Annar heitur aðdáandi í Hafnarfirðinum skrifaði á Fésbók þann fyrsta nóvember: “Tók mér sumarfrísdag í vinnunni og eyði deginum með Arnaldi Indriðasyni, Reykjavíkurnætur byrja vel! Núna er ég MJÖG glöð að hafa skilið eftir nokkra orlofsdaga í sumar. “

Ánægður lesandi tók Reykjavíkurnætur með sér til eyjarinnar St. Vincent og sendi okkur mynd af bókinni með Karíbahafið í bakgrunni.


INNskráning

Nýskráning