SjónogMazen

Reykjavíkurborg styður tjáningarfrelsi

Reykjavík varð ein af skjólborgum ICORN (International Cities of Refuge Network) þegar Jón Gnarr undirritaði samning þess efnis á bókamessunni í Frankfurt í október. ICORN eru samtök borga sem hafa gerst skjólborgir rithöfunda sem ekki er gert kleift að búa í heimalandi sínu. Með því að veita rithöfundi skjólborg er honum tryggður öruggur dvalarstaður og efnahagslegt öryggi og þannig leggja borgirnar sitt að mörkum til þess að stuðla að tjáningarfrelsi einstaklingsins.

Fyrsti rithöfundurinn sem fær skjól í Reykjavík er hinn palestínski Mazen Maarouf en hann kom til landsins í september síðastliðnum. Hér er hægt að lesa viðtal við Mazen Maarouf sem birtist í The Reykjavik Grapevine.

Hér má finna myndband þar sem tekið er viðtal við Sjón sem birtist á heimasíðu Kulturkontakt Nord. Í viðtalinu lýsir Sjón verkefninu og þátttöku Reykjavíkurborgar í því.

INNskráning

Nýskráning