Í gær kom út í fyrsta sinn íslensk þýðing á stórvirki gríska sagnaritarans Heródótusar sem hann nefndi Rannsóknir eða Historíai á grísku. Þetta er fyrsta varðveitta sagnaritun heimsins, kom fyrst fyrir sjónir manna á árunum 430-424 fyrir Krists burð en höfundurinn er talinn hafa látist um 420 f.Kr.
Íslendingar hafa því þurft að bíða í tæp 2.400 ár eftir því að geta lesið þetta mikla verk á sínu máli. Þýðandinn er Stefán Steinsson læknir sem nam forngrísku við Háskóla Íslands og hefur unnið að verkinu með læknisstörfum árum saman. Rannsóknir Heródótusar koma út hjá Máli og menningu í ritröð klassískra verka sem hófst með Ummyndunum Óvíds 2009.
Efni Rannsókna er vöxtur og viðgangur persneska heimsveldisins frá því að Persar brutust undan Medum undir stjórn Kýrusar Kambýsessonar á 6. öld F.Kr. en lauk árið 479 f.Kr. þegar Grikkjum, fáum, fátækum og sundruðum, tókst að standa saman nógu lengi til að gjörsigra óvígan Persaher í nokkrum sögufrægum orustum. Enginn veit hvernig Evrópa liti út ef innrás Persa hefði tekist en víst er að hún væri ekki söm og hún er nú.
Rannsóknir er einstaklega fjörug og skemmtileg bók sem lætur þessa löngu liðnu atburði og persónur standa lesanda ljóslifandi fyrir hugskotssjónum. Heródótus var sjálfur margfróður og hafði farið um flest þau lönd sem hann lýsir. Hann segir frá eigin upplifunum, frá því sem hann les og skoðar en líka frá því sem hann heyrir, bæði stóru og smáu. Síðari tíma sagnfræðingar áttu það til að skamma hann fyrir að vera of skemmtilegur, halda til haga ómerkilegu slúðri og gera sitt besta til að halda áheryendum sínum og lesendum vel vakandi. Þess njótum við enn í dag.
Það er gaman að segja frá því að í vikunni birtist grein um nýja enska þýðingu á Rannsóknum í Times Literary Supplement eftir Edith Hall, prófessor í klassískum fræðum við King‘s College í London. Grein hennar heitir „Herodotus, the Homer of European Prose,“ og þar rökstyður hún sambærilegt gildi Rannsókna og Hómerskviða fyrir evrópska menningu. Það er ómetanlegt að hafa nú loksins fengið þetta dýrmæta verk á okkar tungu í einstaklega lipurri og kjarnyrtri þýðingu.