Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur og myndskreytir, hlaut Sögustein, barnabókaverðlaun IBBY á Íslandi, þegar þau voru afhent í fjórða sinn á alþjóðlegum degi barnabókarinnar, 2. apríl. Verðlaunin eru 500 þúsund krónur og eru veitt rithöfundi, myndlistarmanni eða þýðanda sem með höfundarverki sínu hefur auðgað íslenskar barnabókmenntir.
Valnefnd skipuð Önnu Heiðu Pálsdóttur, bókmenntafræðingi, Ármanni Jakobssyni, bókmenntafræðingi og Rögnu Sigurðardóttur, myndlistarkonu og rithöfundi, segir í greinargerð sinni að „Ragnheiður Gestsdóttir hafi með skáldsögum sínum, myndskreytingum, léttlestrarefni, endursögðum ævintýrum, söngvasöfnum og textasöfnum og fleiru, lagt fram mjög mikilvægan skerf til íslenskra barnabókmennta. Verkin hennar spanna allt frá fyrstu sporum barnsins inn í ævintýraheim bókmenntanna með vísum, söngvum og litlum ævintýrum, alla leið til unglingsáranna með tilheyrandi vandamálum, þroska og uppgötvunar á hlutverki einstaklingsins í lífinu.“
Sögusteinn var fyrst afhentur árið 2007. Áður hafa Sigrún Eldjárn, Kristín Steinsdóttir og Kristín Helga Gunnarsdóttir fengið Sögustein IBBY.