Ragnheiður Eiríksdóttir

Ragga Eiríks með bók í smíðum

Á milli þess sem Ragnheiður Eiríksdóttir ferðast prjónandi um heiminn spáir hún í kynlíf og hefur aðstoðað ófáa gegnum tíðina með ýmis vandamál því viðkomandi. Hlustendur Rásar 2 þekkja líflega kynlífspistla hennar og í næsta mánuði ætlar hún að halda námskeiðið Konur & kynlíf í samstarfi við Baðhúsið.

Það er gaman að segja frá því að þessa dagana leggur Ragga lokahönd á bók um kynlíf sem ætluð er körlum og konum á öllum aldri. Þar svarar hún ótal spurningum sem beint hefur verið til hennar sem kynlífsráðgjafa gegnum tíðina og sýna hversu víðtækt svið kynlífið er og hversu mikil áhrif það hefur á líf flestra. Bókin verður fróðleiksnáma fyrir allt fullorðið fólk, ekki síst þá sem eru að stíga sín fyrstu skref á kynlífssviðinu.

Vorið og sumarið fer í frágang á bókinni sem kemur út snemma í haust.

INNskráning

Nýskráning