Lesari

Rafræn útgáfa í sókn

Eftirspurn eftir rétti á rafrænum útgáfum bóka eftir íslenskra höfunda eykst með ári hverju en nýverið var stigið stórt skref í þeim efnum hjá Forlaginu og samið við franska útgáfufélagið Métailié um rafræna útgáfu á fjórum spennusögum Árna Þórarinssonar og tíu bókum  Arnaldar Indriðasonar. Einnig hefur verið gengið frá samningum við Random House í Þýskalandi um rafbókarétt á fjórum skáldsögum Einars Kárasonar og við landa þeirra hjá Lübbe um fjórtán sögur Arnaldar, en bækur þess síðastnefnda hafa þegar verið gefnar út í rafrænu formi í Bretlandi og Bandaríkjunum.

Þar sem rafbókamarkaðurinn er enn að þróast hefur Forlagið reynt að takmarka þessa tegund samninga þar til nú. Þannig ríkti til að mynda töluverð óvissa um ýmsa kostnaðarliði við útgáfu rafbóka sem tengjast  framleiðslu og dreifingu og því var erfitt að ákvarða viðeigandi höfundagreiðslur.

Sala á rafbókum hefur glæðst hjá stærstu samstarfsaðilum Forlagsins, þó enn sem komið er sé hún mjög lítil í samanburði við prentaðar bækur. Það er þó metnaðarmál að gera erlendum lesendum kleift að nálgast löglega rafbókarútgáfu á eigin  máli – ekki síst í ljósi þess að oft er er hægt að hlaða niður ólöglegum útgáfum þeirra af netinu. Forlagið hefur fremur kosið samstarf við stærri forlög erlendis sem leiða rafbókavæðingu í heimalöndum sínum og þá helst í Bandaríkjunum, Bretlandi, Þýskalandi, Frakklandi og Holland,  en ótal fyrirspurnir berast nú frá ýmsum forlögum víðs vegar um heim sem vilja tryggja sér rafbókaréttindin til að fyrirbyggja að þau komist í hendur samkeppnisaðila þeirra, þó viðkomandi forlög hafi etv. ekki hafið útgáfu á rafbókum sjálf.

Sjá umfjöllun RÚV

INNskráning

Nýskráning