Rafbækur

Leiðbeiningar fyrir rafbækur

 

Áður en þú kaupir rafbók í fyrsta sinn þarftu að fá rétt forrit í græjuna þína. Það tekur stutta stund og þú þarft aðeins að gera þetta einu sinni:

a) Sæktu smáforritið Bluefire Reader í græjuna þína, það gerir þú í gegnum App-búðina. Forritið er ókeypis. (Ef þú hefur sótt þér smáforritið Aldiko þá virkar það einnig mjög vel).

b) Skráðu þig sem notanda hjá Adobe og fáðu notandanafn, Adobe ID, til að geta flutt rafbækurnar milli tækja, t.d. tölvu og lestölvu. Smelltu hér til að fá Adobe ID.

c) Síðan virkjar þú notandanafnið þitt inn í forritinu Bluefire Reader. Þá getur þú keypt og lesið rafbækur í gegnum lesarann þinn.

d) Svo er bara að velja sér bók!

e) Þegar gengið hefur verið frá kaupunum færðu sendar upplýsingar um rafbókina þína og niðurhalshlekk í tölvupóst. Þegar þú smellir á hlekkinn opnast rafbókin í bókasafninu þínu og þú getur byrjað strax að lesa.

Viltu vita meira? Smelltu hér til að lesa meira um rafbækur.

Lentir þú í vandræðum? Hafðu samband í síma 575 5600 eða sendu fyrirspurn áforlagid@forlagid.is

Rafbækur Forlagsins er ekki hægt að lesa með Kindle lestrartölvum

Athugið að ekki er hægt að skila rafrænni bók ef búið er að sækja rafrænt eintak bókarinnar!forlagid-rafbaekur-leidbeiningar-lesbretti

Áður en þú kaupir rafbók í fyrsta sinn þarftu að fá rétt forrit í græjuna þína. Það tekur stutta stund og þú þarft aðeins að gera þetta einu sinni:

a) Sæktu Adobe Digital Editions en það er ókeypis forrit sem notað er til að lesa rafbækur. Smelltu hér til að hlaða því niður.

b) Skráðu þig sem notanda hjá Adobe og fáðu notandanafn, Adobe ID, til að geta flutt rafbækurnar milli tækja, t.d. tölvu og lestölvu. Smelltu hér til að fá Adobe ID.

c) Þegar þú ert búin að hlaða Adobe Digital Edition niður í tölvuna og ert komin/n með Adobe ID þá virkjar þú forritið með því að fara í Help / Library og velja Authorize Computer. Þetta þarf einnig að gera við önnur tæki sem á að nota. Þú getur lesið rafbækurnar þínar á þeim tækjum sem þú virkjar með Adobe-notandanafninu þínu.

d) Svo er bara að velja sér bók.

e) Þegar gengið hefur verið frá kaupunum færðu sendar upplýsingar um rafbókina þína og niðurhalshlekk í tölvupóst. Þegar þú smellir á hlekkinn opnast rafbókin í bókasafninu þínu og þú getur byrjað strax að lesa.

Lentir þú í vandræðum? Hafðu samband í síma 575 5600 eða sendu fyrirspurn áforlagid@forlagid.is

Viltu vita meira? Smelltu hér til að lesa meira um rafbækur.

Rafbækur Forlagsins er einnig hægt að lesa með Kindle lestrartölvum

Athugið að ekki er hægt að skila rafrænni bók ef búið er að sækja rafrænt eintak bókarinnar!

Tæknikröfur fyrir PC tölvur:

Windows 7, Windows Vista, XP (útgáfa 2 eða 3)

Internet Explorer 6, 7, 8 eða Firefox Adobe Flash Player 9

Tæknikröfur fyrir Mac tölvur:

MacOS 10.4.10, 10.5, 10.6 (Intel) – 10.4.10, 10.5 (PowerPC)

Safari 2.0.4, Firefox 2 Adobe Flash Player 8 eða 9

INNskráning

Nýskráning