Halldór Laxness

Rafbækur Halldórs Laxness

Í tilefni þess að í dag eru 110 ár liðin frá fæðingu skáldsins, Halldórs Laxness, hafa fimm skáldsögur eftir hann ásamt ævisögunni Halldór Laxness – ævisaga komið út sem rafbækur. Það er ánægjulegt til þess að vita að bækur Halldórs Laxness séu aðgengilegar sem flestum, hvort sem fólk kýs að lesa bækurnar á prenti eða á rafrænu formi.

Skáldsögurnar sem nú eru fáanlegar sem rafbækur eru Sjálfstætt fólk, Íslandsklukkan, Heimsljós, Salka Valka og Brekkukotsannáll.

Í tilefni afmælisins stendur Gljúfrasteinn ásamt samstarfsaðilum fyrir metnaðarfullri dagskrá sem hægt er að nálgast á heimasíðu Gljúfrasteins.

INNskráning

Nýskráning