Marie Fortune

Ráðstefna og fræðsla um kynferðislega misnotkun í trúarlegu samhengi

Opin ráðstefna og fræðsla um kynferðislegt ofbeldi og kynferðislega misnotkun í trúarlegu samhengi verða haldin 18. – 19. október 2011.

Það eru guðfræði- og trúarbragðadeild Háskóla Íslands, Fagráð kirkjunnar um meðferð kynferðismála og Guðrún Ebba Ólafsdóttur sem standa fyrir viðburðinum. Einn fremsti fræðimaður samtímans á þessu sviði mun koma til landsins af þessu tilefni, séra dr. Marie Fortune frá FaithTrust Institute í Bandaríkjunum.

Markmiðið með komu dr. Marie Fortune til landsins er að bjóða sem flestum að njóta þekkingar hennar og reynslu, einkum þeim sem starfa á hinu kirkjulega sviði en þekking hennar er ekki bundin við það svið eingöngu. Fyrirhugað er að fyrri daginn verði opin ráðstefna um kynferðislegt ofbeldi og forvarnir og síðari dagurinn verði sérsniðinn námsdagur að þörfum starfsfólks kirkju og safnaða.
Ráðstefnan og námsdagurinn er í samvinnu við: Guðfræðistofnun HÍ, Reykjavíkur- og Kjalarnesprófastdæmin, Prestafélag Íslands og Forlagið vegna útgáfu bókarinnar Ekki líta undan.



Hér er að finna nánari upplýsingar um ráðstefnuna, námsdaginn og dr. Marie Fortune.


INNskráning

Nýskráning