Í vikunni afhenti ÍSOR iðnaðarráðherra nýtt jarðfræðikort af Suðvesturlandi sem nú er komið út en Forlagið annast dreifingu kortsins. ÍSOR hefur um áratuga skeið unnið að jarðfræðikortlagningu víða um land, þar á meðal á Suðvesturlandi.
Jarðlög á jarðfræðikortinu spanna rúmlega 4 milljóna ára tímabil og veita góða innsýn í meginþætti í sérstæðri jarðfræði Íslands. Á kortinu eru 163 mismunandi hraun sem runnið hafa frá því að ísaldarjökull hvarf af svæðinu. Einnig er vísað á 40 áhugaverði staði á svæðinu sem valdir voru með það í huga að þar megi sjá markverð, jarðfræðileg fyrirbæri.
Á heimasíðu ÍSOR, www.isor.is, má finna fróðleik um þessa staði og leiðbeiningar til ferðamanna um hvernig komast megi að þeim.