Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Gerði Kristnýju verður frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins á fimmtudaginn. Ballið á Bessastöðum er sprellfjörugt verk um forseta, prinsessu, draug og landnámshænu!
Verkið er byggt að hluta á hinum geysivinsælu Bessastaðabókum Gerðar en tónlistin er eftir Braga Valdimar Skúlason, sem meðal annars hefur getið sér gott orð með Baggalúti og Memfismafíunni, en semur nú í fyrsta sinn tónlist fyrir leikhús. Gerður Kristný og Bragi Valdimar eiga heiðurinn af söngtextum í sýningunni.
Forsetinn á Bessastöðum er að drukkna í skyldustörfum og bréfaflóði, en dreymir um að fá tíma til að skoða skýin, eignast góða vini og borða pönnukökur. Hann fær í heimsókn kóng og drottningu, með barnabarnið sitt, prinsessuna. Þegar konungshjónin eru rokin af stað til að skoða íslenska náttúru halda forsetinn og prinsessan í ævintýralega för um fjöll og firnindi, til að koma mikilvægri kransaköku í réttar hendur. En ekki fer allt eins og til er ætlast – enda er gamall, hrekkjóttur bakaradraugur á kreiki!
Ballið á Bessastöðum er nútímalegt og skemmtilegt ævintýri fyrir alla krakka.