prinsessa

Prinsessufjör á laugardag!

Nú er sagan af nýjustu ævintýrum prinsessunar komin út. Bókin heitir Forsetinn, prinsessan og höllin sem svaf. Í tilefni af útkomu bókarinnar verður prinsessufjör í Eymundsson, Suður-Kringlu, á morgun, laugardaginn 5. nóvember, kl. 15-16.

Höfundurinn Gerður Kristný les upp úr bókinni og áritar – og að sjálfsögðu kemur Prinsessan úr „Ballinu á Bessastöðum“ í heimsókn. Stórar og smáar prinsessur geta því fengið prinsessumyndir af sér með alvöru prinsessu!

Allir krakkar fá kórónur – og allir krakkar hvattir til að koma í búningi.

INNskráning

Nýskráning