Það styttist nú í að nýtt og sprellfjörugt barnaleikrit Gerðar Kristnýjar, Ballið á Bessastöðum, fari á svið í Þjóðleikhúsinu. Söngleikurinn um ævintýrið mikla verður frumsýndur 3. febrúar nk. á Stóra sviðinu. Söguna byggir Gerður á bókum sínum um Prinsessuna á Bessastöðum og Ballið á Bessastöðum sem notið hafa mikilla vinsælda meðal lesenda á öllum aldri.
Forsetinn á Bessastöðum er að drukkna í skyldustörfum og bréfaflóði, en dreymir um að stýra gröfu, kynnast skemmtilegu fólki og borða pönnukökur. Hann fær í heimsókn kóng og drottningu, með barnabarnið sitt, prinsessuna. Þegar konungshjónin eru rokin af stað til að skoða íslenska náttúru halda forsetinn og prinsessan í ævintýralega för um fjöll og firnindi, til að koma mikilvægri kransaköku í réttar hendur. En ekki fer allt eins og til er ætlast – enda er gamall, hrekkjóttur bakaradraugur á kreiki og krefst athygli!