Jólabækurnar hrúgast úr hillunum og enn fleiri titlar eru nú á leið í endurprentun. Nú verður Frönsk svíta endurprentuð sem kom út í september í tilefni af heimsókn dóttur höfundarins á Bókmenntahátíð. Bókin hefur fengið glæsilega dóma og virðast vinsældir hennar ekkert ætla að dala nú fyrir jólin enda er þetta kjörin bók í jólapakkann handa öllum sem kunna að meta fagurbókmenntir.
Valeyrarvalsinn eftir Guðmund Andra Thorsson, Bernskubók eftir Sigurð Pálsson og Málverkið eftir Ólaf Jóhann Ólafsson, bækur sem gagnrýnendur hafa sagt vera bestu bækur þessara virtu og vinsælu höfunda, eru einnig á leið í endurprentun sem og barnabókin Forsetinn, prinsessan og höllin sem svaf, sem er þriðja bókin um þessar fjörugu persónur sem verðlaunaskáldið Gerður Kristný hefur skapað.
Ríkisfang: Ekkert – flóttinn frá Írak á Akranes fjallar um flóttakonur sem fengu búsetu á Akranesi eftir að hafa dvalist í Al Waleed-flóttamannabúðunum. Bókin fjallar um sögu þeirra og örlög en einnig aðlögun þeirra á Íslandi og nýja byrjun. Bókin hefur fengið ótrúlegar viðtökur enda snerta sláandi lýsingar og frásagnir kvennanna alla sem bókina lesa. Bókin er nú á leiðinni í þriðju endurprentun.
Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf slær öll endurprentunarmet þetta árið – en nú er bókin á leið í sjöttu endurprentun. Bókin hefur verið prentuð fjórum sinnum í kilju og tvisvar sinnum innbundin. Dásamleg bók sem hressir, bætir og kætir eins og jólamaltið.