Póstkortamorðin

Póstkortamorðin á toppnum í USA

Spennusagan Póstkortamorðin, sem Íslendingar tóku tveim höndum í vor og lásu upp til agna, er nýkomin út í Bandaríkjunum og rauk þar beint á toppinn á metsölulista New York Times. Enda vart annað hægt þegar tveir fléttumeistarar á borð við James Patterson og Lizu Marklund leggjast á eitt. Póstkortamorðin er dúndurkrimmi sem fékk fína dóma hér heima og nú heyrist kvittur um að Hollywood sýni honum áhuga. Haft er eftir Lizu Marklund að leikstjórinn Paul Greengrass sé jafnvel orðaður við kvikmyndaaðlögun verksins. Ef þú ert ekki búin/n að glugga í Póstkortamorðin þá komdu henni endilega á náttborðið!

INNskráning

Nýskráning