Rithöfundurinn Þórarinn Leifsson á aldeilis uppá pallborðið hjá Dönum þessa dagana. Stórblaðið Politiken tók piltinn fyrir um helgina og skrýddi forsíðu blaðsins og forsíðu bókakálfs síns með verkum hans. Í bókablaðinu sjálfu var síðan stærðarinnar viðtal við Þórarinn í tilefni af útkomu bókarinnar Leyndarmálið hans pabba þar í landi. Bókin hefur vakið feiknamikla athygli bæði fyrir frumleg efnistök sín og stíl og hlotið frábæra dóma. Það kemur í sjálfu sér lítt á óvart því Íslendingar voru afar hrifnir af Leyndarmálinu hans pabba og hið sama er upp á teningnum með nýjustu bóka Þórarin, Bókasafn ömmu Huldar, sem fær sömu stjörnudómana hjá íslenskum gagnrýnendum þessi misserin. Lesendur beggja vegna Norðursjávar kætast enda mjög yfir myrkum húmor og fantasískum frásögnum Þórarins.
Blaðakonan Tine Marie Winter frá Politiken ferðaðist hingað til lands að hitta Þórarinn sem þá var nýstiginn upp úr svínaflensu og var að jafna sig á blóðtappa á fæti. Í spjalli þeirra ræddu þau meðal annars um danskættuðu mannætuna sem er miðpunktur sögunnar og þá staðreynd að Þórarinn hefur verið kallaður „Roald Dahl“ Íslands. Margt fróðlegt kemur fram í viðtalinu, m.a. að Leyndarmálið hans pabba ratar á leiksvið í Þýskalandi og verður brátt að teiknimynd og að forlagið Torgard gefur út Bókasafn ömmu Huldar í Danmörku í haust.