Gagnrýnendur Kiljunnar voru á einu máli: Plokkfiskbókin er frábærlega skemmtileg, nytsamleg og algjörlega einstök!
Plokkfiskbókin, eftir Eirík Örn Norðdahl, er töluvert frábrugðin því sem við eigum að venjast frá honum. Hún situr í raun klofvega á tveimur bókmenntagreinum, skáldverkum og matreiðslubókum. Í henni má finna andlega næringu sem og uppskriftir af raunverulegri næringu, sem sagt, bók sem hægt er að lesa OG upplifa!
Þorgeir Tryggvason sagði meðal annars: „Alveg rosalega skemmtileg bók! Bæði skemmtileg hugleiðingabók en líka skemmtileg matreiðslubók … Öll nálgunin er frumleg … Mjög alþýðlegt og í raun um það, um fátækramat, um fátækt, um að nota afganga og það að læra að elda og byrja að elda. Það er ótrúlega miklu troðið í þessa litlu bók.“
Sunna Dís Másdóttir var sömuleiðis ánægð með bókinni og hrósaði Eiríki sérstaklega fyrir formið: „Þetta er matreiðslubók með útúrdúrum, „fílósófísk“, sjálfsævisöguleg matreiðslubók sem mér finnst að ætti að vera bókmenntaform sem fleiri gætu skrifað inn í.“