Pistill frá Guðbergi: Íslenskara getur það ekki verið

Nú verðum við að stíga varlega til jarðar.
Too big to fail.
Vafalaust hefði mátt margt betur fara.
Nú er bara að bretta upp ermarnar.
Alltaf nóg að gera.
Bankarnir sjálfir bera mesta ábyrgð.
Hvers vegna gekk ríkisstjórnin þá í ábyrgð fyrir bankana? spurði Gunna stöng.
Við erum öll góð í okkur.
Allir verða að fá fyrirgefningu.
Það er mannlegt að skjátlast.
Nú verður nóg að gera fyrir Arnald.
Nú er bara að skrifa hrunbækur fyrir erlendan markað.
Hernig skyldi ömmu Davíðs Oddssonar líða núna ef hún er enn á lífi?
Þyrfti Ólafur Ragnar ekki bara að fá sér nýja hárgreiðslu hjá Einari Karli Haraldssyni.
Einar Karl Haraldsson er alltaf með greiðuna á lofti í öllum flokkum.
Nú verður eitthvað (nógu mikið) að gera fyrir fyrrverandi formann Alþýðubandalagsins á Litla Hrauni.
Hún verður varla sköllótt í starfinu ef hún fær Ingibjörgu Sólrúnu til sín með kenninguna um vitið í „innkaupatöskunni“ sem allra meina bót.
Össur er orðinn röflrisi Íslands, ef marka má „Skýrsluna“.
Hvað varð um karlrembusvínin?
Eru þau í hjólreiðatúr með leifunum af Kvennalistanum?
Íslenskara getur það ekki verið.

INNskráning

Nýskráning