Leikhópur frá Malmö að nafni PotatoPotato vinnur að leikgerð eftir bókinni Píslarvottar án hæfileika eftir Kára Tulinius, í samstarfi við höfundinn sjálfan.
Leikritið verður sett upp í nóvember í Malmö, Stokkhólmi og Gautaborg og stendur til að fara í Norðurlandareisu vorið 2013.
Píslarvottar án hæfileika verður tvinnað við annað leikrit sem fjallar um danska þjóðernisflokkinn og aðra evrópska öfgahægriflokka. Saman heita þessi leikverk Norden Calling, sem mun skoða pólitíska átandið á Norðurlöndum í dag.