Metsöluhöfundurinn James Patterson fékk veglega umfjöllun í Viðskiptablaðinu í gær. Þar segir meðal annars: „Hann selur fleiri bækur en Dan Brown, Stephen King og John Grisham samanlagt. Hann yfirgaf auglýsingabransann 1985, rétt að nálgast fertugt, og hefur síðan gefið út rúmlega 70 skáldsögur. Hann slær öll heimsins met. Nítján skáldsögur röð fóru á topp metsölulista New York Times. Hann selur eina af hverjum sautján innbundnum bókum í Bandaríkjunum. Hann er mesti metsöluhöfundur heims.“ Blaðamaðurinn Hrafn Jökulsson vitnar til svara Patterson við gagnrýni kollega síns Stephen King sem sagði að bækurnar hans væru drasl: „Ég er ekki frábær stílisti. Ég er sögumaður. Þúsundir þola ekki verk mín en milljónir kunna að meta þau, sem betur fer.“
Hrafn tekur líka fram hversu vinsælar bækur Pattersons eru meðal kvenna. „Lesendur fíla Patterson. Og það sem meira er: Patterson skrifar spennubækur, sem ná til kvenna. Og það eru konur sem kaupa meirihluta bóka í Bandaríkjunum, rétt einsog á Íslandi.“ Enda kveðst Patterson líka hrifinn af konum: „Ég ólst upp í húsi sem var fullt af konum: mamma, amma, þrjár systur og tvær læður. Ég heyri enn óm samræðna þeirra í hausnum mér. Ég fleiri konur sem vini en karla mér finnst æðislegt hvernig konur tjá sig.“
Nýjasta bók Pattersons á íslensku er Sjöundi himinn.