Guðrún Helgadóttir, einn okkar helsti barnabókahöfundur, fagnar þessa dagana 40 ára rithöfundarafmæli. Af því tilefni verður efnt til hátíðardagskrár í Félagsheimili Seltjarnarness næstkomandi laugardag, þann 12. október, milli 14 og 16 en viðburðurinn er hluti af Menningarhátíð Seltjarnarness. Leikarahópurinn úr Óvitunum syngur og segir frá sýningunni sem frumsýnd verður daginn eftir. Einnig verður skyggnst inn í líf, leikrit og leyndarmál Guðrúnar á léttan og skemmtilegan hátt. Dagskráin er þéttsetin gestum en meðal þeirra sem koma fram eru Vigdís Finnbogadóttir, Gunnar Helgason, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Ármann Jakobsson og margir fleiri.
Börn sem koma klædd sem gamalmenni fá rjómatertu með jarðarberi, eftirlæti Jóns Odds og Jóns Bjarna.
Frekari upplýsingar um hátíðardagskrána, og Menningarhátíðina, má finna á heimasíðu Seltjarnarness.