Jón Gnarr

Óvæntur hástökkvari

Skáldævisaga borgarstjórans fjölhæfa, Jóns Gnarr, er óvæntur hástökkvari á metsölulistum bókabúðanna um þessar mundir. Sagan Indjáninn sem út kom árið 2006 og vakti þá töluverða athygli. Indjáninn er saga um fjörmikinn strák, örverpi aldraðra foreldra. Drengurinn á við ýmis vandamál að stríða sem valda honum erfiðleikum í uppvextinum, svo sem ofvirkni, athyglisbrest, rautt hár og nærsýni. Hann er hugmyndaríkur og margvísleg uppátæki hans, sum stórhættuleg, vekja litla lukku hjá hinum fullorðnu.

Sannarlega hressandi lesning fyrir hugsandi fólk á öllum aldri.

INNskráning

Nýskráning