Starfsfólk Forlagsins hélt öskudaginn hátíðlegan og hingað mættu til vinnu norn, Rauðhettur, stígvélaði kötturinn, Dimmalimm og fleiri skemmtilegar fígúrur. Að venju voru bestu búningarnir valdir og var tilkynnt við hátíðlega viðhöfn þrjú efstu sætin. Nanna Rögnvaldardóttir, matgæðingur og ritstýra, vann fyrstu verðlaunin þetta árið sem stórhættuleg eðaldama.