Börnum finnst oft gaman að grúska og læra eitthvað nýtt. Ekki er verra að það sé gaman í leiðinni. Á svona grúskstundum er huggulegt að fletta í gegnum orðabækur fyrir börn sem eru skemmtilega myndskreyttar, aðgengilegar og afskaplega fræðandi.
Íslensk barnaorðabók er fullgild orðabók með 2.200 uppflettiorðum, beygingum, orðskýringum og skemmtilegum þemablaðsíðum.
Barnaorðabók – ensk-íslensk, íslensk-ensk er frábær bók fyrir yngstu enskunemendurna. Þar eru fjöldi myndaopna með ýmsum viðfangsefnum, sniðnar að vinnu með orðaforða og málfræði, t.d. Nature, Sports, My family, My body, Verbs og Prepositions.
Skemmtilegar bækur fyrir fjölskylduna til að skoða saman – frábærar fyrir litla skólaorma!