Gerður Kristný

Opin Ljóðabók tileinkuð Gerði Kristnýju

Menningarmiðstöðin Edinborg í samstarfi við Melrakkasetur fer af stað með nýjan viðburð nú í maí sem ber yfirskriftina Opin ljóðabók.

Hefur Menningamiðstöðin fengið til liðs við sig Eirík Örn Norðdahl, Margréti Lilju Vilmundardóttur og Steinunni Ýri Einarsdóttur við skipulagningu dagskrárinnar sem fer fram sunnudaginn 11. maí í Edinborgarhúsinu og í Melrakkasetri.

Dagskrá Opinnar ljóðabókar mun hefjast í Edinborgarhúsinu á Ísafirði síðan færast yfir í Melrakkasetur í Súðavík en dagskráin í ár er tileinkuð Gerði Kristnýju sem nýverið gaf út glæsilegt Ljóðasafn.

Hér að neðan má sjá dagskrá hátíðarinnar:

17:00-18:00
Opnunarræða Steinunn Ýr Einarsdóttir
Erindi Gerður Kristný
Lokaorð Margrét Lilja Vilmundardóttir

18:30
Rútuferð frá Edinborgarhúsinu yfir í Melrakkasetur í Súðavík

19:00
Dagskrá hefst í Melrakkasetrinu þar sem gestum gefst tækifæri á að kaupa sér ljúfengan kvöldverð, nokkur skúffuskáld munu lesa upp, Gerður Kristný les sitt uppáhalds ljóð, tónlist og notaleg kvöldstund.

Endilega fylgist vel með á www.edinborg.is

INNskráning

Nýskráning