Í síðustu viku kynnti Kiljan niðurstöður könnunar sinnar um kanónuverk íslenskra bókmennta og kenndi þar ýmissa grasa. Niðurstöðunum var skipt niður í hina ýmsu lista, s.s. núlifandi höfundar, barnabækur,ljóð, kvenhöfundar o.s.frv. en sömuleiðis var tekinn saman heildarlisti en hér að neðan má sjá 10 efstu sæti hans:
1. Brennu-Njálssaga – Höfundur óþekktur
2. Sjálfstætt fólk – Halldór Laxness
3. Íslandsklukkan – Halldór Laxness
4. Ljóðmæli – Jónas Hallgrímsson
5. Egilssaga – Snorri Sturluson (?)
6. Englar alheimsins – Einar Már Guðmundsson
7. Heimsljós – Halldór Laxness
8. Salka Valka – Halldór Laxness
9. Passíusálmar – Hallgrímur Pétursson
10. Þjóðsögur – Útg. Jón Árnason
Forlagið brást strax við og hóf að taka saman þær bækur heildarlistans sem til eru í prenti. Á föstudagsmorgun var svo uppstilling með bókunum afhjúpuð í verslun okkar á Fiskislóð (hana má sjá hér). Nú hefur sami listi verið tekinn saman og settur í sérstakan flokk á vefnum okkar. Hér má s.s. finna öll öndvegisrit Kiljunnar sem til eru í prenti á einum stað!