Það er ekki að spyrja að vinsældum Jussa Adler-Olsen. Nýja bókin hans, Marco-áhrifin, rýkur úr hillunum og aðdáendur þessa danska krimmakóngs eru himinlifandi. Marco-áhrifin er fimmta bókin um Carl Mørck og félaga í Deild Q í dönsku lögreglunni en sagan hverfist um þjófinn Marco sem kemst í hann krappann í undirheimum Kaupmannahafnar. Við mælum með því að fólk lesi hana bara strax um helgina.