Magnea Matthíasdóttir

Ólögleg afmælisútgáfa?

Fjallað var um endurútgáfu fyrstu skáldsögu Magneu J. Matthíasdóttur, Hægara pælt en kýlt, í Víðsjá í vikunni. Sagan, sem kom fyrst út 1978, gerist annars vegar í ævintýraheimi, hins vegar í heimi eiturlyfjanna.

Hún hlaut mikið lof þegar hún kom út fyrir efnistök, persónulýsingar og meðferð málsins og má telja hana eina af athyglisverðustu bókum síns áratugar. Dagný Kristjánsdóttir prófessor í íslenskum bókmenntum, ritar eftirmála við bókina og segir í Víðsjárviðtalinu um að ræða “áberandi glæsilega frumraun” sem “hefur dýptir og víddir sem var afskaplega gaman að endurlesa.” Dagný kveður bókina hafa elst vel, en sömu sögu má segja um höfundinn sem hélt upp á sextugsafmæli sitt þann 13. janúar sl.

Ákveðið var á Forlaginu að miða endurútgáfuna við afmælisdaginn, en undibúningurinn fór fram í mikilli leynd og fullu lögleysi, enda var höfundi ekki kynnt útgáfan fyrr en í afmælisveislunni. Var það mál gesta að þeir hefðu aldrei séð Magneu verða jafnklumsa og þegar hún fékk bókina í hendur.

Starfsmenn Forlagsins höfðu óttast að þurfa að gista fangageymslur lögreglunnar fyrir tiltækið, en þeim til mikils léttis gladdist höfundurinn við framtakið og gaf umsvifalaust leyfi sitt fyrir því.

Hægt er að hlusta á umfjöllun Víðsjár hér: http://www.ruv.is/bokmenntir/haegara-paelt-en-kylt

Bókin er fáanleg á eftirtöldum stöðum:

Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18.
Eymundsson Austurstræti
Eymundsson Skólavörðustíg
Verslun Forlagsins, Fiskislóð 39

www.eymundsson.is
www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning