Ævisaga Ingu Dóru Björnsdóttur mannfræðings um hina óvenjulegu konu Ólöfu Sölvadóttur er komin út í Bandaríkjunum. Sagan Ólöf eskimói hefur vakið verðskuldaða athygli en þar rekur Inga Dóra ævintýralegt lífshlaupi íslenskrar konu sem ferðaðist lengi um með bandarísku farandfjölleikahúsi.
Árið 1858 fæddist dvergvaxið stúlkubarn á Ytri-Löngumýri í Blöndudal. Þetta var Ólöf Sölvadóttir sem fluttist til Vesturheims 18 ára og slóst fljótlega í för með bandarísku farandfjölleikahúsi. Síðar brá hún sér í inúítagervi og hóf að flytja fyrirlestra um Grænland og líf sitt þar, en á það land hafði hún aldrei stigið fæti.
Sem eskimóinn Olof Krarer ávann hún sér frægð og frama með uppspunninni ævisögu sinni, ferðaðist víðsvegar um Bandaríkin og tókst að halda blekkingaleiknum áfram í upp undir þrjá áratugi og flytja um 2500 fyrirlestra.
Ævisagan Ólöf eskimói var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2004. Inga Dóra er einnig höfundur bókarinnar Kona þriggja eyja: ævisaga Ásu Wright sem kom út fyrir síðustu jól.
The University of Michigan Press gefur bókina út undir yfirskriftinni Ólöf the Eskimo Lady: A Biography of an Icelandic Dwarf in America.