Hin stórskemmtilega bók Birgittu Sifjar um Ólíver er ein þeirra sem tilnefndar eru til hinna virtu Kate Greenaway verðlauna í flokki myndabóka, eins og fram kom á vef The Guardian í vikunni.
Ólíver segir frá dálítið sérstökum dreng og ævintýrunum sem hann lendir í með bestu vinum sínum, sem flestir eru tuskudýr, brúður og annað dót.
Bókin fékk frábærar viðtökur þegar hún kom út á Íslandi en í dómum um hana var m.a. sagt:
„Á yfirborðinu má segja að einfaldleikinn ráði ríkjum í bók Birgittu um Ólíver, en þegar betur er að gáð verður ljóst að bókin leynir svo sannarlega á sér. Ekki er mikill texti á hverri síðu en texti og myndir spila listilega vel saman með þeim árangri að myndirnar bera stóran hluta sögunnar áfram og undirstrika mátt ímyndunarinnar. … Hér er á ferðinni hrífandi bók sem er, líkt og söguhetjur hennar, alveg sérstök.“
Silja Björk Huldudóttir / Morgunblaðið