Ólafur heiðraður

Ólafur Gunnarsson var á dögunum heiðraður og útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2013.  Útnefning sú fór fram við hátíðlega athöfn í Hlégarði þar sem Ólafi var meðal annars þakkað fyrir framlag sitt á skáldasviðinu. „ Hann dregur upp lifandi og litsterka mynd af sögutíma og persónum og er ósmeykur við að velta upp þeim stóru siðferðilegu spurningum sem spurt er í alvöru skáldskap. Hann hefur nýtt sögu Íslands á mjög áhugaverðan hátt …“ í skáldskap,“ sagði þar meðal annars í hátíðarræðu.

Við óskum Ólafi hjartanlega til hamingju með upphefðina og Mosfellingum til hamingju með smekkvísina!



INNskráning

Nýskráning