Í tilefni þess að nú hefur orðabókavefurinn Snara stórbætt leitarkerfi sitt og bætt við tveimur glæsilegum verkum býður Snara nú ókeypis aðgang að vefgáttinni í Snara.is í 14 daga.
Snara geymir yfir 2 milljónir uppflettiorða í 22 orðabókum og uppflettiritum sem 20.000 notendur Snöru nýta sér í hverri viku.
Auf deutsch?
Loksins er komin á markað vönduð og ítarleg þýsk-íslensk veforðabók, en slík vefbók hefur ekki verið aðgengileg hérlendis áður. Bókin geymir yfir 65 þúsund uppflettiorð og orðasambönd úr þýsku nútímamáli.
Ertu týnd/ur?
Íslandsatlasinn, sem er viðamesta kortabók af Íslandi sem nokkru sinni hefur komið fyrir almenningssjónir, er nú orðinn leitarhæfur á Snöru með yfir 43.000 örnefnum.
Process og dýrð
Undanfarna viku hafa tvö orð verið jafn vinsæl í uppflettiorðaleit Snöru. Orðin procsess og dýrð voru jöfn í fyrsta sæti, bæði með 69 uppflettingar. Implementation er í þriðja sæti með 64 uppflettingar.