Bókabloggarinn geðþekki Kolbrún Skaftadóttir sparar ekki lýsingarorðin í umfjöllun sinni um bókina Það sem ég sá og hvernig ég laug sem kom út á dögunum. Hún segir bókina auðlesna og ógleymanlega og mælir hikstalaust með henni. Bók þessi mun annars falla vel í kramið hjá aðdáendum dramatískra þroskasagna. Aðalpersónan Evie Spooner þráir að fullorðnast og verða eins ómótstæðilega falleg og móðir hennar. En lífið er ekki einfalt eftir að stjúpi hennar snýr heim úr stríðinu – leyndarmál fortíðarinnar láta á sér kræla og ástin kviknar á óvæntum stað.
Fullkomin febrúarbók!