Innan vefbókasvæðisins Snara.is stendur nú yfir söfnun á íslensku slangri. Íslenskufræðingarnir Einar Björn Magnússon og Guðlaugur Jón Árnason ritstýra vefnum slangur.snara.is en þangað hafa þegar borist rúmlega þrjú hundruð ábendingar um ný orð og hafa viðtökurnar farið fram úr björtustu vonum.
Markmið vefjarins er að safna saman orðum sem líklegast myndu ekki rata inn í hefðbundnar orðabækur landsmanna. Síðast var gefin út slangurorðabók árið 1982 en ýmislegt hefur jú breyst síðan þá, t.d. þegar horft er til samskiptatækni nútímamannsins. Gamla slangurorðabókin, Orðabók um slangur, slettur, bannorð og annað utangarðsmál, stendur fyrir sínu sem heimild um tíðaranda þess tíma og er stefnt að því að endurútgefa hana á vegum Klassíska kiljuklúbbsins nú í vor.
Ef söfnunin nú gengur vel má ætla að nýja Slangurorðabókin komi út árið 2011.
Söfnunarvefurinn er gagnvirkur, þar getur hver sem er sett inn orð, ábendingar og/eða tekið þátt í að móta skýringar einstakra orða eða orðasambanda. Hundruð einstaklinga, á öllum aldri, hafa nú þegar sett inn orð, skoðanir og pælingar inn á síðuna og standa vonir til þess að virkja sem flesta. Þú þarft alls ekki að vera með margfalt háskólapróf til þess að taka þátt; áhuginn nægir.
Þekkir þú t.d. orðin: hveitiþreyta, farát, tálgari, gg og skrúðkrimmi?