True Blood

Og blóðið rennur …

Unnendur fantasíusagna og fagurtenntra vampíra kannast við bækur Charlaine Harris um gengilbeinuna Sookie Stackhouse. Brátt hefst önnur sería geysivinællar þáttaraðar sem byggð er á bókunum á Stöð 2 en yfirskrift þeirra er True Blood. Nýverið hóf Forlagið að gefa út þessar bækur Harris og sú fyrsta, Dauð þar til dimmir, hefur þegar vakið stormandi lukku. Von er á nýrri bók með haustinu svo við hvetjum bókaorma til þess að kynna sér þessar spennandi sögur – það skal hins vegar tekið fram að þær eru svolítið sexý, svo þær henta máski ekki fyrir þá allra allra yngstu.

INNskráning

Nýskráning