Kristín Helga Gunnarsdóttir

Ofurlestur fyrir alla landsmenn

Ný íslensk smásaga verður frumflutt samtímis í öllum grunnskólum landsins næstkomandi fimmtudag. IBBY samtökin á Íslandi skipuleggja þennan ofurlestur en alls munu 42.000 grunnskólanemar hlýða á söguna umræddan morgun. Höfundur sögunnar, Kristín Helga Gunnarsdóttir, mun aukinheldur lesa hana á Rás 1 á sama tíma, kl. 9.45, svo allir landsmenn geti einnig fylgst með.

Kristín skrifaði söguna að beiðni IBBY samtakanna á Íslandi en hún ber  titilinn „Hörpuslag“. Þar segir af systkinum sem eru á leið í skólann – þar sem lesa á upp nýja íslenska smásögu fyrir alla grunnskólanema á Íslandi. Á þessari örstuttu leið þurfa þau að keppa við tímann, glíma við dauðann, takast á kaldrifjaðar hulduverur í klettahöll og færa miklar fórnir. Sagan spyr áleitinna spurninga um sjálfstæði, frjálsan vilja og virði þess sem manni er kærast.

Sagan verður lesin fyrir grunnskólabörn á öllum aldri í leikfimisölum og smíðastofum, á sal og í sundlaugum, í frímínútum og í dönskutímum, allt eftir því hvernig hver skóli kýs að fella upplesturinn að stundaskrám nemendanna. Tilgangurinn er að fagna degi barnabókarinnar með notalegri sögustund og vekja um leið athygli á sameiningarmætti skáldskaparins. Með því að flytja söguna fyrir mörg þúsund lesendur í einu er mögulegt að skapa bókmenntaumræðu sem nær til samfélagsins alls.





INNskráning

Nýskráning