Ófeigur Sigurðsson tók við Evrópsku bókmenntaverðlaununum í Brussel á mánudagskvöld. Verðlaunin hlaut Ófeigur fyrir bók sína Skáldsaga um Jón, sem kom út á síðasta ári. Sigurlaunin eru fimm þúsund evrur og þeir útgefendur sem gefa út bókina utan íslands hljóta þýðingastyrk.
Forlagið óskar Ófeigi innilega til hamingju með þessa upphefð.