Fræðslu – og söfnunarátaki til styrktar Neyðarmóttöku vegna nauðgana hefur nú verið hleypt af stokkunum. Verkefni þetta er kennt við Öðlinginn 2010 en í farabroddi þess eru nokkrir landsþekktir öðlingar. Í hópnum eru m.a. Rúnar Kristinsson knattspyrnustjóri, Karl Sigurðsson tölvunarfræðingur og Baggalútur, Höskuldur Sæmundsson leikari, Atli Fannar Bjarkason blaðamaður, Snorri Ásmundsson myndlistarmaður, Sturla Sighvatsson framkvæmdastjóri, Lárus R. Haraldsson verkefnisstjóri og Víðir Guðmundsson leikari.
Við hvetjum þig til að kynna þér málið og kíkja á öðlingana á heimasíðunni Öðlingurinn.is
Neyðarmóttakan hefur ekki farið varhluta af ítrekuðum niðurskurði í heilbrigðiskerfinu undanfarin ár þó þar sé um að ræða ómissandi þjónustu. Söfnunarátakið felst ekki aðeins í því að styðja við það starf sem þar fer fram heldur einnig í því að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi hérlendis. Af þessu tilefni rennur hluti af ágóða bókarinnarÁ mannamáli eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur til söfnunarsjóðsins en í bókinni er fjallað um stöðu ofbeldismála á Íslandi með sérstakri áherslu á kynbundið og kynferðislegt ofbeldi. Markmið hennar er m.a. að vinna bug á ranghugmyndum um þetta viðkvæma efni. Bókin hefur hlotið einróma lof og margskonar viðurkenningar, m.a. tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Á bóndadaginn var póstlagt bréf til íslenskra öðlinga og þeir hvattir til þess að leggja þessari baráttu lið. Átakið stendur til konudagsins, 21. febrúar nk., en á meðan því stendur munu öðlingarnir hver með sínum hætti vekja athygli á málefninu og bjóða fólki að styrkja átakið í gegnum heimasíðuna Öðlingurinn.is. Á konudaginn 2010 mun kyndillinn færast frá bónda til konu; þegar kvenkyns öðlingar taka við átakinu úr höndum öðlings karla og halda baráttunni áfram.