Öðlingar sameinast

Samstöðuátakið Öðlingurinn skipti um hendur nú um helgina þegar öðlingar af kyni karla létu kyndilinn í hendur kvenna – á sjálfan konudaginn. Öðlingurinn er fræðslu- og styrktarátak gegn kynbundnu ofbeldi sem hófst á bóndadaginn, þann 22. janúar,  þegar valinn hópur karlmanna fékk boð um að leggja átakinu lið og safna fé fyrir Neyðarmóttöku vegna nauðgana. Á konudaginn 21. febrúar færðist kyndillinn frá bónda til konu; þegar öðlingar innan kvennahreyfingarinnar tóku við átakinu.

Öðlingar innan kvennahreyfingarinnar munu beita sér í baráttunni og safna fé fyrir samstöðufund sem haldinn verður í október. Þá verður fjórði kvennafrídagurinn haldinn hátíðlegur í Reykjavík en markmið hans verður að að vekja athygli á kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi.

Samstaða íslenskra kvenna á kvennafrídaginn þann 24. október 1975 vakti heimsathygli. Það sama má segja um 24. okt. árið 1985 og síðast árið 2005. Vonir standa til þess að kvennafrídagurinn í haust verði stærri og fjölmennari en nokkru sinni fyrr.

Fræðsla er mikilvægasta vopnið í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Öðlingarnir hvetja þig til að kaupa bókina Ofbeldi á Íslandi: Á mannamáli á heimasíðunni Öðlingurinn.is og styrkja þannig samstöðufundinn í haust. Öðlingarnir sem nú hafa tekið við söfnuninni eru fulltrúar á vegum samtaka kvennahreyfingarinnar, m.a. frá Stígamótum, Kvennaathvarfinu, Kvenréttindafélagi Íslands, Zonta konum, Soroptimistum, Kvenfélagasambandinu, Femínistafélagi Íslands, Kvennaráðgjöfinni, Unifem á Íslandi o.fl.

Frá vinstri á myndinni eru Ása Atladóttir og Sigurlaug Viborg frá Kvenfélagasambandi Íslands, Margrét K. Sverrisdóttir og Halldóra Traustadóttir frá Kvenréttindafélagi Íslands og Ingveldur Ingólfsdóttir frá Bandalagi kvenna í Reykjavík og öðlingarnir Karl Sigurðsson tónlistarmaður og Snorri Ámundsson myndlistarmaður.


INNskráning

Nýskráning